Í dag eru 20 ár liðin frá að sveitarfélagið Dalabyggð varð til í núverandi mynd við sameiningu Saurbæjarhrepps og Dalabyggðar. Sameiningin var í kjölfar íbúakosningar 8. október 2005 um sameiningu Reykhólahrepps, Saurbæjarhrepps og Dalabyggðar. Íbúar Saurbæjarhrepps og Dalabyggðar samþykktu sameiningu, en Reykhólahreppur hafnaði.
Innan marka Dalabyggðar hafa starfað sveitarfélög undir 13 heitum í 22 útfærslum vegna 8 breytinga á sveitarfélagsmörkum og stofnun nýrra við klofning eða sameiningu sveitarfélaga. Sveitarfélögin eru Skógarstrandarhreppur, Hörðudalshreppur, Miðdalahreppur, Haukadalshreppur, Laxárdalshreppur, Hvammshreppur, Fellsstrandarhreppur, Skarðsstrandarhreppur, Saurbæjarhreppur, Klofningshreppur, Skarðshreppur, Suðurdalahreppur og Dalabyggð.
Á heimasíðu Héraðsskjalasafns Dalasýslu er stutt samantekt um sveitarfélög á starfsvæði Dalabyggðar.
