Bæjarhátíð – dagskrá í mótun

DalabyggðFréttir

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fer fram 3.-5. júlí næstkomandi og er undirbúningur í fullum gangi. Nikkólína hefur leikinn á fimmtudagskvöldinu með tónleikum þar sem fólk er hvatt til að taka dansskóna með og liðka sig fyrir sumarið.

Á föstudeginum verður boðið upp á Söngveislu í Dalabúð þar sem nýr flygill verður vígður og rennur aðgangseyrir óskiptur í flygilsjóð. Aðrir dagskrárliðir hátíðarinnar eru m.a.:
Skottsala, Veltibíllinn, bátarallý, leir á Víkingaöld, brekkusöngur, varðeldur, sundlauga þrautabraut, Daladætur syngja og skemmta í Vatnshornskirkju þar sem boðið verður upp á kirkjukaffi og saga saumaklúbbsins sýnd. Þá verða hjónin og rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín með bókmenntapartý á laugardeginum sem ber yfirskriftina: Mikilhvellur í Dölunum – skapandi óreiða í friðsælli sveit.

Kjötsúpugangan verður endurvakin og sýningin Matarmenning Dalanna verður sett upp í Nýsköpunarsetrinu en það er samfélagssýning þar sem skoðaður verður matur og matarhefðir okkar, hvernig amma setti saman veisluborð og mögulega hvernig börnin sjá fyrir sér matarmenningu framtíðarinnar.

ATH. Dagskráin er enn í mótun. Þau sem hafa áhuga á að vera með á dagskránni eða hafa hugmyndir að sniðugum atriðum eða viðburðum geta haft samband við Ingibjörgu sem sér um skipulag hátíðarinnar í ár, á netfangið: igisladottir@me.com

Takið helgina frá, við hlökkum til að njóta hennar með ykkur!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei