Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fer fram 3.-5. júlí næstkomandi og er undirbúningur í fullum gangi. Nikkólína hefur leikinn á fimmtudagskvöldinu með tónleikum þar sem fólk er hvatt til að taka dansskóna með og liðka sig fyrir sumarið.
Á föstudeginum verður boðið upp á Söngveislu í Dalabúð þar sem nýr flygill verður vígður og rennur aðgangseyrir óskiptur í flygilsjóð. Aðrir dagskrárliðir hátíðarinnar eru m.a.:
Skottsala, Veltibíllinn, bátarallý, leir á Víkingaöld, brekkusöngur, varðeldur, sundlauga þrautabraut, Daladætur syngja og skemmta í Vatnshornskirkju þar sem boðið verður upp á kirkjukaffi og saga saumaklúbbsins sýnd. Þá verða hjónin og rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín með bókmenntapartý á laugardeginum sem ber yfirskriftina: Mikilhvellur í Dölunum – skapandi óreiða í friðsælli sveit. Að ógleymdri kjötsúpugöngu sem verður endurvakin.
ATH. Dagskráin er enn í mótun. Þau sem hafa áhuga á að vera með á dagskránni eða hafa hugmyndir að sniðugum atriðum eða viðburðum geta haft samband við Ingibjörgu sem sér um skipulag hátíðarinnar í ár, á netfangið: igisladottir@me.com
Takið helgina frá, við hlökkum til að njóta hennar með ykkur!
