Það var sem fyrr glatt á hjalla á Þjóðhátíðardaginn í Dalabyggð.
Í Dalabúð hófst hátíðardagskrá kl. 13:00 á hátíðarræðu Sr. Snævars Jóns Andréssonar. Fjallkona Dalabyggðar Embla Dís Björgvinsdóttir flutti svo ávarp, hún hafði valið ljóðið Íslands æviskeið eftir Ingunni Snædal. Guðmundur Bæringsson flutti tónlist á milli atriða og fékk meira að segja Fjallkonuna til að taka lagið með sér. Dagskráin endaði svo á tilkynningu um Dalamann ársins 2026. Það voru hjónin Anna Sigríður Grétarsdóttir og Pálmi Jóhannsson sem hlutu titilinn að þessu sinni, óskum við þeim enn og aftur til hamingju.
Eftir dagskránna í Dalabúð færðu gestir sig út að Stjórnsýsluhúsi þar sem Dalahestar teymdu undir börnum, Slysavarnadeild Dalasýslu var með hoppukastala fyrir yngri börnin, Björgunarsveitin Ósk sá um kassaklifur og Skátafélagið Stígandi var með eld og fjör að venju. Sveitarstjórn Dalabyggðar grillaði pyslur fyrir gesti og börnin fengu einnig smá glaðning.
Dalabyggð þakkar öllum fyrir komuna og samveruna í gær.
