Dagbók sveitarstjóra 13. – 26. júlí

SafnamálFréttir

Síðustu vikur hafa verið erilsamar þrátt fyrir hið klassíska íslenska sumarveður, rok og rigningu! 😊

 

Ég átti fundi með sveitarstjórum á Vesturlandi og fulltrúum SSV um framtíðarfyrirkomulag Heilbrigðiseftirlits Vesturlands í kjölfar samþykktra lagabreytinga sem fela í sér tilfærslu eftirlitsverkefna frá sveitarfélögum til ríkisstofnana. Áætlað er að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 og munu þær hafa veruleg áhrif á starfsemi núverandi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Um þessar mundir stendur yfir gagnaöflun í samstarfi við önnur sveitarfélög á Vesturlandi og SSV til að varpa skýrara ljósi á stöðuna. Talsverð óvissa ríkir um umfang þeirra verkefna sem eftir verða hjá sveitarfélögunum, hvernig staðið verður að starfsmannamálum, frágangi búnaðar og skjala, auk annarra skuldbindinga. Hér er um mikilvægt hagsmunamál að ræða sem fylgja þarf vel eftir. Tryggja þarf að ekki verði rof á þjónustu, að staðbundin þekking glatist ekki og að þau verkefni sem eftir standa verði að einhverju leyti tekjuberandi fyrir sveitarfélögin en feli ekki eingöngu í sér aukinn kostnað. Einnig skiptir máli hvernig sveitarfélögin hyggjast leysa þau verkefni sem eftir verða, hvort áfram verði unnið í  samstarfi eða verkefnin fari aftur til hvers sveitarfélags fyrir sig.

 

Eftir að ég tók við starfi sveitarstjóra hef ég reglulega kíkt við í verslun Handverkshópsins Bolla. Ég er mikill unnandi handverks og finnst sérstaklega gaman að sjá íslenska hönnun og framleiðslu. Á bak við Bolla stendur flottur og samhentur hópur sem framleiðir fjölbreyttar vörur, meðal annars úr lopa, útskorna muni, hekl, prjón, tölur úr kindahornum og beinum, leirmuni, leikföng og margt fleira. Ég mæli eindregið með því að gestir og heimamenn líti við í verslunina og næli sér í fallega lopapeysu, vettlinga eða aðra fallega muni á leið sinni um Búðardal.

Ákveðið var að vinna milliuppgjör fyrir Dalabyggð í fyrsta sinn, en um er að ræða gróft mat á fjárhagsstöðunni við lok fyrstu fimm mánaða ársins. Í fjárhagsáætlun fyrir árið er gert ráð fyrir tæplega 22,3 milljóna króna halla á A-hluta sveitarsjóðs við árslok. Helstu niðurstöður benda til þess að hallareksturinn verði meiri á yfirstandandi ári en gert var ráð fyrir í áætluninni. Helstu skýringar eru þróun verðlags, aukinn launakostnaður og seinkun á áætluðum tekjum, en rekstur sveitarfélagsins er þannig samsettur að útgjöld stærri málaflokka eru oft þyngri fyrri hluta ársins. Hafa verður í huga að aðeins er um gróft stöðumat að ræða og enn er langt eftir af árinu. Það er engu að síður mikilvægt og jákvætt skref af hálfu sveitarstjórnar að taka stöðuna með þessum hætti til að fylgjast náið með þróuninni og bregðast við tímanlega ef þörf krefur.

 

Landsmót hestamanna fór fram á Hólum í Hjaltadal nú í júlímánuði og lögðu margir Dalamenn leið sína þangað. Ánægjulegt var að sjá að stór hópur barna og unglinga fór og keppti fyrir hönd Hestamannafélagsins Glaðs á mótinu og stóðu sig alveg til fyrirmyndar. Það verður gaman að fylgjast með þessum ungu metnaðarfullu knöpum í framtíðinni.

Byggðarráð kom saman til fundar 21. júlí síðastliðinn. Nokkur mál voru á dagskrá, meðal annars farið yfir milliuppgjörið, stöðuna varðandi Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, úthlutun lóða auk annarra mála.

Byggðarráð fjallaði sérstaklega um vegamál í sveitarfélaginu. Undanfarið höfum við leitað eftir svörum frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðs útboðs á vegkaflanum frá Erpstöðum að Haukadalsá, sem stefnt var að færi fram í vor. Í samskiptum við fulltrúa Vegagerðarinnar kom m.a fram að fjármagni hefði verið forgangsraðað yfir í brýn verkefni, meðal annars til lagfæringa á mjög illa förnum vegkafla í Saurbæ sem ráðist verður í nú í haust.

Byggðarráð bókaði eftirfarandi:

„Byggðarráð fagnar því að ráðast eigi í lagfæringar á vegkafla í Saurbæ en ítrekar mikilvægi þess að staðið verði við útboð á Vestfjarðavegi um Miðdali. Mikill umferðarþungi ásamt þungaflutningum er á umræddum vegakafla og er hann mikilvæg tenging við Vestfirði. Í kjölfar aukins umferðarþunga hefur ástand vegarins hríðversnað með tilheyrandi slysahættu.“

Hér er um verulegt hagsmunamál fyrir sveitarfélagið að ræða og við munum áfram leggja áherslu á að verkefnið komist í útboð sem allra fyrst. Fundinn sátu Guðlaug Kristinsdóttir formaður, Ingveldur Guðmundsdóttir og Bjarnheiður Jóhannsdóttir, sem sat fundinn sem varamaður fyrir Sindra Geir Sigurðarson.

Ég átti einnig samtöl við nokkra áhyggjufulla íbúa vegna nýrrar áætlunar Náttúruverndarstofnunar þar sem lagt er til að ráðist verði í heildarendurskoðun á lagaumhverfi refaveiða. Stofnunin telur að þar sem ekki hafi borist tilkynningar um tjón af völdum refa frá fjárbændum eða um tjón í æðarvörpum séu forsendur að hluta til brostnar fyrir áframhaldandi veiðum með sama hætti og verið hefur. Meðal annars er rætt um endurskoðun á fyrirkomulagi veiða, samningum við sveitarfélög og endurgreiðslum vegna veiða. Ljóst er að sveitarfélögin þurfa að fylgjast náið með framvindu þessa máls og koma hagsmunum sínum skýrt á framfæri þegar endurskoðunin fer fram. Mikilvægt er að áfram verði hægt að bregðast við vargi til að fyrirbyggja tjón og að starfsskilyrði þeirra sem sinna þessum verkefnum verði ásættanleg.

 

Við fengum blaðamann frá Skessuhorni í heimsókn í stjórnsýsluhúsið sem skoðaði Auðarstofu, þar sem fyrirhugað er að ráðast í umfangsmiklar endurbætur. Hugmyndin er að þróa áfram það rými sem Nýsköpunar- og þekkingarsetrið hefur til umráða. Stækkandi hópur fólks velur sér nú að búa í Dalabyggð og sinna fjarvinnu, og því er mikilvægt að bjóða upp á aðstöðu sem uppfyllir þarfir nútímans. Markmiðið er að skapa fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta unnið í góðu starfsumhverfi og notið um leið skemmtilegs félagsskapar.

 

Síðastliðinn laugardag fór fimmta Pósthlaupið fram í Dölunum og tókst einstaklega vel. Alls tóku um 150 hlauparar þátt og ríkti mikil gleði meðal þátttakenda og gesta. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá fólk á öllum aldri taka þátt, allt frá ungum krökkum til eldri hlaupara, og nokkur brautarmet voru slegin. Slíkir viðburðir verða ekki að veruleika nema með öflugum sjálfboðaliðum og vil ég færa öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd hlaupsins bestu þakkir. Pósthlaupið hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur og fjölskylduvænn viðburður sem dregur fram það besta í samfélaginu okkar.

Einn fallegan þriðjudagsmorgun kíkti ég í heimsókn á Rjómabúið Erpsstaði. Þar tók á móti mér hlýlegt andrúmsloft, kaffi og gott spjall við Þorgrím og Helgu húsráðendur og fleiri gesti. Á Erpsstöðum er rekið kúabú samhliða ferðaþjónustu og mjólkurvinnslu. Á sumrin eru þar opin ísbúð og verslun sem árlega taka á móti um 30.000 gestum. Ég keypti þar dýrindis nýbakað súrdeigsbrauð og skoðaði fallegt handverk í versluninni. Einnig fékk ég leiðsögn um fjósið og húsdýragarðinn, sem er nýjasta viðbótin við þennan glæsilega rekstur.

 

Dagbók sveitarstjóra fer í stutt sumarleyfi í ágúst en snýr aftur með hefðbundnum hætti um mánaðamótin ágúst og september. Þangað til óska ég öllum íbúum og gestum Dalabyggðar áframhaldandi ánægjulegs sumars.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei