Mikil ánægja með Pósthlaupið sem fór fram í Dölunum um helgina

SafnamálFréttir

Fimmta Pósthlaupið fór fram s.l. laugardag og tókst það með eindæmum vel. Alls tóku 150 hlauparar þátt í fjórum mismunandi vegalengdum. Mikil gleði og ánægja var meðal þáttakenda og gesta sem komu til að hvetja sitt fólk. Hlauparar voru á ýmsum aldri sá elsti 71 árs og yngstir voru tveir drengir sem voru einungis 8 ára og annar þeirra sigraði í 7 km flokki karla. Nokkur brautarmet voru sett að þessu sinni.

Póststubburinn var á sínum stað og voru yfir 50 þátttakendur sem hlupu 1,5 km innan þorpsins. Þátttakendur fengu glaðning frá Póstinum og MS.

Það er í ýmis horn að líta í svona hlaupi og voru um 30 sjálfboðaliðar frá Björgunarsveitinni Ósk, UMF Ólafi Páa og Glímufélagi Dalamanna sem stóðu vaktina í hinum ýmsu verkefnum dagsins.

Allir hlauparar fengu frítt í nýju sundlaug okkar Dalamanna í boði Dalabyggðar, en einnig fengu allir þátttakendur, gestir og gangandi að gæða sér á veitingum, súpu, ís og skyrmysu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei