Þakkir frá sveitarfélaginu

DalabyggðFréttir

Dalabyggð vill færa viðbragðsaðilum, ferðaþjónustuaðilum og öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd vegna almyrkvans innilegar þakkir fyrir faglegt og vel unnið starf.

Undirbúningur vegna viðburðar af þessari stærðargráðu krefst mikillar samvinnu, framsýni og skipulagningar og var ánægjulegt að sjá hversu vel allir hagsmunaaðilar unnu saman að því að tryggja öryggi, góða þjónustu og jákvæða upplifun gesta og heimamanna. Framlag ykkar skipti sköpum og sýndi styrk samfélagsins þegar margir leggja hönd á plóg.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei