Metmánuður í Íþróttamiðstöðinni

DalabyggðFréttir

Júlímánuður var einstaklega góður í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal en aðsókn fór fram úr björtustu vonum. Gestafjöldi var mikill allan mánuðinn og féll hvert aðsóknarmetið á fætur öðru. Gestir nýttu sér fjölbreytta aðstöðu miðstöðvarinnar, þar á meðal sundlaug, líkamsrækt og íþróttasal.

Mesta aðsóknin var um verslunarmannahelgina þegar um 750 gestir heimsóttu íþróttamiðstöðina. Þá var líf og fjör í mannvirkinu og ljóst að bæði heimamenn og ferðamenn kunnu vel að meta aðstöðuna. Sundlaugin naut mikilla vinsælda í góða veðrinu á meðan aðrir nýttu sér einnig líkamsræktina og aðra þjónustu miðstöðvarinnar.

Viðtökurnar hafa verið framar vonum á fyrstu rekstrarmánuðum íþróttamiðstöðvarinnar og mikill fjöldi gesta lagt leið sína í nýja mannvirkið frá opnun. Aðsókn sumarsins sýnir hversu vel miðstöðin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur samkomu-, heilsu- og tómstundastaður fyrir íbúa og gesti svæðisins.

Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar þakkar öllum gestum fyrir komuna og þann hlýhug sem starfseminni hefur verið sýnd á þessu fyrsta starfsári. Aðsóknartölur sumarsins gefa góð fyrirheit um áframhaldandi öflugt starf og staðfesta mikilvægi miðstöðvarinnar í samfélaginu í Búðardal.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei