Síðustu vikur hafa liðið hratt en ég hef nú gegnt starfi sveitarstjóra Dalabyggðar frá 15. júní, eða í rúmlega tvo mánuði. Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og fyrir tækifærið til að starfa fyrir samfélagið okkar. Þessir fyrstu vikur í starfi hafa verið afar lærdómsríkar og gefandi og ég hef fengið tækifæri til að kynnast enn betur því öfluga fólki og fjölbreyttu verkefnum sem einkenna sveitarfélagið okkar.
Ég hef eftir bestu getu reynt að nýta fyrstu vikurnar í starfi til að heimsækja fyrirtæki, rekstraraðila, félagasamtök, stofnanir og íbúa sveitarfélagsins. Þar hef ég fengið dýrmæta innsýn í samfélagið okkar og ekki skemmir fyrir að nokkur kaffiboð hafa einnig ratað á dagskrána. Ég hlakka til að halda áfram að kynnast fólkinu og starfseminni í sveitarfélaginu enn betur á komandi mánuðum.

Nú þegar ágústmánuður er á enda má segja að sveitarfélagið sé smám saman að komast aftur í sinn hefðbundna takt eftir sumarleyfin. Starfsfólk hefur verið að snúa til baka til starfa og verkefnin fara af stað af auknum krafti eftir rólegri sumarmánuði.
Skólahald í Auðarskóla fer vel af stað og greinilegt að bæði nemendur og starfsfólk eru tilbúin að takast á við spennandi verkefni vetrarins. Ég óska öllum nemendum, kennurum og starfsfólki skólans farsældar á komandi skólaári og hlakka til samstarfsins.

Nú styttist í einn af skemmtilegustu og litríkustu tímum ársins þegar réttirnar fara af stað. Smölun heimalanda er hafin og fyrstu réttir haustsins fara fram 5. september en þá fyllast sveitirnar af lífi, samveru og góðum anda. Réttirnar eru mikilvægur hluti af menningu okkar og samfélagi og skapa dýrmæt tækifæri fyrir fólk að hittast og eiga góða stund saman. Ég hvet alla sem geta til að taka þátt og njóta þessara skemmtilegu tíma.

Vinna við fjárhagsáætlun Dalabyggðar er að fara af stað en henni verður formlega ýtt úr vör í þessari viku með vinnufundi sveitarstjórnar og að fastanefndir sveitarfélagsins taka hana til umfjöllunar. Á vinnufundi sveitarstjórnar verður farið yfir þær lykiltölur sem unnið verður út frá við fjárhagsáætlunargerð, hvaða þjónustuþætti á að leggja áherslu á, stöðu fjárfestinga, rekstur nýrrar íþróttamiðstöðvar og margt fleira.
Í vikunni átti ég svo fund með fulltrúum lögreglunnar á Vesturlandi þar sem farið var yfir ýmis sameiginleg verkefni og málefni sem snerta öryggi og þjónustu við íbúa í sveitarfélaginu.

Íþróttamiðstöðin í Búðardal tók á móti veglegri sendingu síðastliðinn föstudag. Meðal þess sem barst voru flotdýna, kleinuhringur, pulsa, dreki, draugur, bátur og fljótandi boltakarfa sem án efa eiga eftir að vekja mikla lukku. Um er að ræða höfðinglega gjöf frá nágrönnum okkar í Grundarfjarðarbæ, Sveitarfélaginu Stykkishólmi, Snæfellsbæ og Eyja- og Miklaholtshreppi. Fyrir hönd Dalabyggðar vil ég þakka þeim kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem á eftir að nýtast vel og gleðja gesti sundlaugarinnar.

Segja má að haustið fari af stað af fullum krafti með fjölbreytt og spennandi verkefni fram undan og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs við íbúa, starfsfólk og aðra samstarfsaðila á komandi mánuðum.
– Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar
