Glænýtt sundlaugardót tekið í notkun!

DalabyggðFréttir

Sundlaugin opnar aftur með glænýju sundlaugardóti eftir gólfviðgerðirnar i vikunni sem leið!

Íþróttamiðstöðin tók á móti risastórri sendingu síðastliðinn föstudag og þar var ýmislegt að finna! Á myndinni hér að ofan sést til dæmis flotdýna, kleinuhringur, pulsa, dreki, draugur, bátur og fljótandi boltakarfa. Dótið var rétt komið úr myndatökunni þegar að fyrstu börnin fengu að prófa nýja dótið með bros á vör.

Um er að ræða veglega gjöf frá nágrönnum okkar í Grundarfjarðabæ, Sveitarfélaginu Stykkishólmi, Snæfellsbæ og Eyja- og miklaholtshreppi. Dalabyggð þakkar kærlega fyrir gjöfina!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei