Óskað eftir framboðum í ungmennaráð – kynning 15. september

DalabyggðFréttir

Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð!

Hlutverk ungmennaráðs er m.a.:

  • Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
  • Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og tillögum til skila.
  • Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum tilgangi.
  • Að efla tengsl ungmenna í sveitarfélaginu og auka tengsl þeirra við stjórnkerfi sveitarfélagsins.

Stjórn ungmennaráðs skipa 4 fulltrúar; formaður, varamformaður, ritari og varamaður.

Ungmennaráð er skipað til tveggja ára í senn og er skipað í helming sæta ár hvert. Því er nú skipað í tvö sæti.

Öll sem eiga lögheimili í Dalabyggð, eru á aldrinum 14 – 20 ára og hafa áhuga á að taka þátt í starfi ráðsins eru hvött til að skila inn framboðum til Dalabyggðar á netfangið einarbjorn@dalir.is fyrir 20.09.2026.

Fram þarf að koma kynning á ykkur, ásamt ástæðu þess að þið viljið starfa í ráðinu. Foreldrar eru hvattir til þess að hvetja ungmenni sín í að sækja um að taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni.

 

Kynning í nýsköpunarsetrinu þriðudaginn 15. september

Einar Björn verður með stutta kynningu á starfsemi ungmennaráðsins og opið hús í nýsköpunarsetrinu klukkan 10:10 fyrir ungmenni á grunnskólaldri og aftur klukkan 17:00 þar sem ungmenni á menntaskóla aldri eru sérstaklega hvött til að mæta en sá viðburður er opinn öllum.

 

 

Umsóknir sendist á einarbjorn@dalir.is

Umóknarfestur rennur út á miðnætti 20. september

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei