Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð!
Hlutverk ungmennaráðs er m.a.:
- Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
- Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og tillögum til skila.
- Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum tilgangi.
- Að efla tengsl ungmenna í sveitarfélaginu og auka tengsl þeirra við stjórnkerfi sveitarfélagsins.
Stjórn ungmennaráðs skipa 4 fulltrúar; formaður, varamformaður, ritari og varamaður.
Ungmennaráð er skipað til tveggja ára í senn og er skipað í helming sæta ár hvert. Því er nú skipað í tvö sæti.
Öll sem eiga lögheimili í Dalabyggð, eru á aldrinum 14 – 20 ára og hafa áhuga á að taka þátt í starfi ráðsins eru hvött til að skila inn framboðum til Dalabyggðar á netfangið einarbjorn@dalir.is fyrir 20.09.2026.
Fram þarf að koma kynning á ykkur, ásamt ástæðu þess að þið viljið starfa í ráðinu. Foreldrar eru hvattir til þess að hvetja ungmenni sín í að sækja um að taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni.
Kynning í nýsköpunarsetrinu þriðudaginn 15. september
Einar Björn verður með stutta kynningu á starfsemi ungmennaráðsins og opið hús í nýsköpunarsetrinu klukkan 10:10 fyrir ungmenni á grunnskólaldri og aftur klukkan 17:00 þar sem ungmenni á menntaskóla aldri eru sérstaklega hvött til að mæta en sá viðburður er opinn öllum.
Umsóknir sendist á einarbjorn@dalir.is
Umóknarfestur rennur út á miðnætti 20. september
