Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

DalabyggðFréttir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í gegnum umsóknargátt Rannís líkt og síðast, sjá hér:  Umsóknagátt

Umsækjendur eru hvattir til að leita aðstoðar hjá ráðgjöfum SSV sem eru boðnir og búnir að veita umsækjendum góð ráð við gerð umsókna.

Menningarverkefni (verkefnastyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir)
Sigursteinn Sigurðsson í síma 433-2313 eða 698-8503
Netfang; sigursteinn@ssv.is

Atvinnuþróunar og nýsköpunarverkefni

Ólöf Guðmundsdóttir í síma 898-0247
Netfang: olof@ssv.is

Helga Guðjónsdóttir í síma 895-6707
Netfang: helga@ssv.is

Hrafnhildur Tryggvadóttir í síma 849-2718
Netfang: hrafnhildur@ssv.is

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð er á finna á vef SSV; Uppbyggingarsjóður Vesturlands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei