Dagbók sveitarstjóra 14. – 27. september

SveitarstjóriFréttir

Undanfarnir dagar hafa verið viðburðaríkir og fjölbreyttir. Öflugt mannlíf og skemmtilegir viðburðir í sveitarfélaginu hafa sett svip sinn á síðustu vikur samhliða fjölmörgum verkefnum á vettvangi sveitarfélagsins. Hér að neðan er stutt yfirlit yfir það helsta
Ég átti fund með Iðu Marsibil Jónsdóttur framkvæmdarstjóra leigufélagsins Bríetar þar sem farið var yfir stöðu húsnæðisuppbyggingar í Dalabyggð. Til stendur að hefja byggingu á öðru parhúsi við Borgarbraut og mun skýrast á næstu vikum hvenær framkvæmdir geta hafist. Einnig voru rædd önnur uppbyggingarverkefni í sveitarfélaginu og skoðaðir möguleikar á frekara samstarfi til að styðja við vöxt og þróun samfélagsins.

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár er komin vel á veg. Deildarstjórar vinna nú að yfirferð þeirra málaflokka sem heyra undir hverja deild, en á sama tíma eru fastanefndir sveitarfélagsins að fjalla um fjárhagsáætlunina og fara yfir fjárhagsramma, áherslur og gjaldskrár. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki 9. október.

Ég átti einnig fund með sveitarstjórum Reykhólahrepps og Strandabyggðar, en sveitarfélögin standa saman að rekstri byggðasamlags um slökkviliðsmál. Slökkviliðsstjóri sat fundinn og var farið yfir stöðu rekstursins og helstu verkefni fram undan. Jákvæð þróun hefur átt sér stað innan slökkviliðsins, þar sem töluverð endurnýjun hefur orðið í hópnum og áhugi á starfinu er mikill. Á fundinum var ákveðið að leita til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að fá ráðgjöf um hvernig best verði staðið að samstarfinu til framtíðar. Ljóst er að áfram eru tækifæri til að efla samstarfið enn frekar, bæði með markvissri uppbyggingu innviða og með því að styrkja þjónustuna við íbúa.

Það var tekið vel á móti mér á Eiríksstöðum þar sem ég kíkti við einn miðvikudaginn. Bjarnheiður Jóhannsdóttir fór með mér um svæðið og sagði mér frá allri uppbyggingunni sem hefur átt sér stað þar síðustu ár. Mikið af fallegu handverki var til sölu, skartgripir, drykkjahorn, skrautmunir og fleiri skemmtilegar gjafavörur. Tilgátuhúsið var fullt af gestum sem sátu og hlýddu á frásögn starfsmanna í ljúfri stemmingu við langeldinn. Upplifunin er eiginlega líkust því að ferðast aftur í tímann en það er vel hægt að gera sér í hugarlund hvernig aðstæður voru á 10. öld. Það var líka gaman að ganga um göngustígana, skoða rústirnar, styttur og fleira skemmtilegt.

Rifið var gólfið af salnum í nýju íþróttamiðstöðinni en um var að ræða einhverskonar galli í virkni gólfsins sem gerði það að verkum að nýttist ekki alveg sem skyldi. Sjálfboðaliðar á vegum íþróttafélagsins Undra sáum um að rífa gólfið af og enn og aftur sýndi það sig hversu góð samstaða er í samfélaginu ef verk þarf að vinna. Yfir 20 sjálfboðaliðar mættu og voru ekki lengi að klára verkið. Slíkur kraftur og vilji til að leggja hönd á plóg er eitt af því sem gerir samfélagið okkar svo sterkt

Laugardaginn 19. september fór fram ársfundur SÍHU sem Nikkolína í samstarfi við Dalahótel hélt að Laugum í Sælingsdal. Að loknum fundarstörfum var boðið upp á hátíðarkvöldverð þ.e. glæsilegt steikarhlaðborð og svo fyrsta flokks harmonikkuball. Við hjónin létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta og áttum þar afar ánægjulega stund. Bæði maturinn og umgjörðin voru til fyrirmyndar en skemmtileg tónlist og góður félagsskapur settu svip sinn á kvöldið. Við nutum einnig þess að ganga um svæðið og njóta veðurblíðunnar á þessum fallegu og sögufrægu slóðum.

Eftir helgina var mér boðið í heimsókn til stórbóndans Eyjólfs í Ásgarði þar sem ég fékk að vera viðstödd lambadóm. Þar var saman kominn góður hópur fólks til aðstoðar, auk fulltrúa frá RML. Það var bæði fróðlegt og áhugavert að fylgjast með vinnunni og gaf hún góða innsýn í það faglega starf sem bændur leggja í ræktun og kynbætur sauðfjár. Augljóst er að mikill metnaður og þekking býr að baki þeirri starfsemi hér í sveitarfélaginu.

 

Þaðan lá leiðin til Akureyrar ásamt Sindra Geir Sigurðssyni sveitarstjórnarfulltrúa, þar sem við sátum Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Dalabyggðar. Á þinginu var kjörin ný stjórn og lagðar línur fyrir starf sambandsins næstu fjögur árin. Landsþingið er mikilvægur vettvangur fyrir fulltrúa sveitarfélaga víðs vegar að af landinu til að ræða sameiginleg verkefni, helstu áskoranir og þau tækifæri sem blasa við sveitarstjórnarstiginu á komandi árum. Jafnframt gefst þar gott tækifæri til að mynda og efla tengsl við samstarfsfólk í öðrum sveitarfélögum. Á þinginu komu einnig saman fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem skilgreina sig sem landbúnaðarsveitarfélög. Þar var rætt um mögulega stofnun sérstaks samstarfs- og samráðsvettvangs fyrir þessi sveitarfélög, þar sem unnið yrði sameiginlega að hagsmunamálum sem tengjast landbúnaði og dreifbýli. Fundargestir voru almennt sammála um að málefni landbúnaðar fái oft takmarkaða umfjöllun í almennri umræðu um sveitarstjórnarmál. Ákveðið var að vinna hugmyndina áfram og kalla til fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til frekari umræðu og mótunar næstu skrefa.

Íþróttavika Evrópu er í fullum gangi en sett hefur verið saman metnaðarfull og fjölbreytt dagskrá að tilefni hennar. Að baki dagskránni standa UDN, Dalabyggð og Reykhólahreppur. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi en í dagsskránni má finna ýmis sundnámskeið, flot, frísbígolf, borðtennis, Qigong og margt fleira. Ég hvet að sjálfsögðu sem flesta til að taka þátt.

Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei