Vel sóttur fundur um menningarmál og menningarhús

SveitarstjóriFréttir

Þann 8. október var haldinn opinn íbúafundur á vegum Menningarnefndar Dalabyggðar, þar sem rædd voru málefni félagsheimila og annarra menningarhúsa, sem og málefni hátíða, sem Dalabyggð hefur staðið að.
Þau Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Guðmundur Bæringsson og Jón Egill Jóhannsson, aðalmenn menningarmálanefndar sátu fyrir svörum og rættu málin vítt og breitt við íbúa.
Fundurinn var vel sóttur og mjög fjörugar umræður, þar sem fram voru bornar margar áhugaverðar hugmyndir um nýtingu húsanna, tilhögun hátíða og hvað við sem íbúar viljum fá út úr þeim.
Það var virkilega ánægjulegt að finna hversu fólk lætur sig varða alla þá aðila sem standa fyrir menningarviðburðum, bæði einkaaðila og aðra og einnig var talsvert rætt um hvernig Sveitarfélagið Dalabyggð getur sem best stutt við lifandi menningarstarfsemi í formi skipulags og aðstöðu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei