Dagskrá BARNÓ í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 var formlega sett í Klifi í Ólafsvík, fimmtudaginn 1. október.

Barnó er nú haldin í annað sinn og fer fram víðs vegar um Vesturland. Í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og upp í 18 ára.

Í Dalabyggð verður ýmislegt um að vera og munum við uppfæra dagskránna hér í þessari frétt eftir því sem viðburðir bætast við.

Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að taka þátt í sem flestum viðburðum, sem eru börnum að kostnaðarlausu!

Barnó er fjölskylduhátíð og því höfðum við til foreldra/forráðamanna að fylgja yngri börnum á viðburði.

Sjá dagskrá hér fyrir neðan: 

2. október

Carla Maeso verður með fjölskyldusirkusdag í Dalabúð, föstudaginn 2. október nk. frá kl. 15:00 – 18:30

Um er að ræða vinnustofu þar sem þrjár ólíkar greinar sirkuslistarinnar eru teknar fyrir.
Carla hefur numið sirkuslistir við tvo evrópska sirkusskóla. Viðburðurinn hentar fólki af öllum gerðum þar sem hægt er að aðlaga sköpun og sirkuslistina að hverjum og einum þátttakenda.

3. október

Námskeið í skartgripagerð með DalaMey

Í Auðarskóla, 3. október kl. 09:00 og eftir hádegi, 13:30 og 6. október kl. 16:00.

Látum sniðin á horninu leiða okkur áfram hvernig hálsmenið mun verða. Því ekkert horn er eins, hægt væri að segja eins og fingrafar okkar manna.

Aðeins 5 komast að á hvert námskeið.

Skráning fer fram á sigurdis89@gmail.com

Ath. ef einstaklingur er með öndunarfærasjúkdóm er ekki mælt með þessu námskeiði.

6. október

Námskeið í skartgripagerð með DalaMey

Í Auðarskóla, 3. október kl. 09:00 og eftir hádegi, 13:30 og 6. október kl. 16:00.

Látum sniðin á horninu leiða okkur áfram hvernig hálsmenið mun verða. Því ekkert horn er eins, hægt væri að segja eins og fingrafar okkar manna.

Aðeins 5 komast að á hvert námskeið.

Skráning fer fram á sigurdis89@gmail.com

Ath. ef einstaklingur er með öndunarfærasjúkdóm er ekki mælt með þessu námskeiði.

10. október

Shjówmenn sirkussýning um sjómennskuna & opið sirkusnámskeið á BARNÓ. 

Haldið í íþróttasalnum hjá Dalahótel að Laugum í Sælingsdal, laugardaginn 10. október kl. 14:00

Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.

Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.
Viðburðurinn er ókeypis og er styrktur af Uppbyggingasjóði Vesturlands.
11. október

Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu er fjörug fjölskyldusmiðja þar sem áhersla er lögð á leik, samveru og tónlist með einföldum og skemmtilegum klappleikjum og söngvum. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf. Ókeypis aðgangur.

Haldið í Félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal, hefst kl.11:00

Klappsmiðjan er tilvalin leið fyrir börn að njóta tónlistar, hreyfingar og samveru.
Fjölskylduvænt og frítt – öll hjartanlega velkomin! Ókeypis aðgangur.

Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng.

Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!

 Aldur: 4-10 ára og fullorðnir (yngri og eldri systkini velkomin með!)
Tungumál: Smiðjan fer að mestu fram á íslensku en aðgengileg fjölskyldum með önnur móðurmál.

13. október

Tónlist og sköpunarsmiðja.
Sögur gegnum tónlist (Stories from music), verður haldin í Dalabúð, þriðjudaginn 13. október kl. 17:00

Juan Pablo Cerezales spilar tónlist og börnin skapa sögur og myndskreytingar út frá því hvað þau finna í tónlistinni. 

Stories from music. A fun journey through music and storytelling with Juan Pablo Cerezales.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei