Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands og kynningarfundur

DalabyggðFréttir

Opið fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í gegnum umsóknargátt Rannís líkt og síðast, sjá hér: Umsóknagátt

Umsækjendur eru hvattir til að leita aðstoðar hjá ráðgjöfum SSV sem eru boðnir og búnir að veita umsækjendum góð ráð við gerð umsókna.

Menningarverkefni (verkefnastyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir) Sigursteinn Sigurðsson í síma 433-2313 eða 698-8503 Netfang; sigursteinn@ssv.is

Atvinnuþróunar og nýsköpunarverkefni

Ólöf Guðmundsdóttir í síma 898-0247 Netfang: olof@ssv.is

Helga Guðjónsdóttir í síma 895-6707 Netfang: helga@ssv.is

Hrafnhildur Tryggvadóttir í síma 849-2718 Netfang: hrafnhildur@ssv.is

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð er á finna á vef SSV; Uppbyggingarsjóður Vesturlands

Kynningarfundur

SSV býður til opins kynningarfundar um Uppbyggingarsjóð Vesturlands föstudaginn 16. október kl. 12:00–13:00.

Á fundinum verður farið yfir markmið sjóðsins, styrkjaflokka og úthlutunarreglur. Einnig verður farið í gegnum umsóknarkerfið og gefin hagnýt ráð um gerð umsókna.

Fundurinn fer fram á Teams og verður jafnframt í beinu streymi á Facebook, þar sem áhorfendur geta komið á framfæri spurningum sem svarað verður á fundinum.

Fundurinn er öllum opinn og sérstaklega ætlaður þeim sem hafa hug á að sækja um styrk til verkefna á Vesturlandi.

Athugið: Fundurinn verður tekinn upp og upptakan gerð aðgengileg á miðlum SSV að honum loknum.

Verið hjartanlega velkomin að skjánum!

Hlekkur á TEAMS.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei