Dagbók sveitarstjóra 27. september – 11. október

SveitarstjóriFréttir

Vikan hófst á fundi sveitarstjórnarfulltrúa með Breiðafjarðarnefnd. Um var að ræða góðan og gagnlegan fund þar sem farið var yfir starfsemi nefndarinnar og helstu verkefni hennar.

Við í stjórnsýsluhúsinu kvöddum Magnínu Kristjánsdóttur eða Ínu eftir tæplega 40 ára störf fyrir sveitarfélagið. Ína býr yfir mikilli þekkingu og það hefur verið einstaklega gott að leita til hennar með hvað það sem hefur komið upp. Það hafa eflaust flestir sem hafa starfað hjá sveitarfélaginu þurft að leita í viskubrunn hennar í gegn um árin. Er henni þakkað kærlega fyrir vel unnin störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni.

Sveitarstjórar á Vesturlandi voru boðaðir á fund í húsakynnum SSV í Borgarnesi með fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar. Þar var farið yfir stöðu flutnings heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkisins og rætt um næstu skref. Ljóst er að ákveðin verkefni verða áfram á hendi sveitarfélaganna og virðist verkaskiptingin, við fyrstu sýn, nokkuð skynsamleg. Áhersla verður áfram á að sveitarfélög sinna reglubundnum staðbundnum verkefnum.

Við Guðbrandur Tumi, varaoddviti Dalabyggðar, áttum morgunkaffifund með Gunnari lögreglustjóra á Vesturlandi og Jóni Arnari varðstjóra. Þar fórum við yfir stöðu löggæslumála í umdæminu og fengum kynningu á samfélagslöggæslu. Fundurinn var mjög gagnlegur og gott að fá innsýn í störf lögreglunnar og tölfræði sem tengist starfseminni.


Að fundi með lögreglunni loknum héldum við Tumi á fund með þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Það olli nokkrum vonbrigðum að aðeins fjórir af sjö þingmönnum mættu til fundarins og að eini ráðherra kjördæmisins skyldi ekki sjá sér fært að vera viðstaddur. SSV fór yfir helstu hagsmunamál kjördæmisins og að því loknu fékk hvert sveitarfélag tækifæri til að koma sínum áherslum á framfæri. Fyrir hönd Dalabyggðar voru samgöngumál, húsnæðismál, umgjörð landbúnaðar og löggæslumál meðal helstu áhersluatriða.


Þann 8. október var haldinn opinn íbúafundur um menningarmál og framtíð menningarhúsa. Fundurinn var afar vel sóttur og þar komu fram margar góðar hugmyndir sem menningarmálanefnd Dalabyggðar mun vinna áfram með á komandi misserum.


Ingibjörg Þóranna oddviti, Skjöldur Orri formaður fræðslunefndar og sveitarstjóri Dalabyggðar áttu fund með félagsmálastjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs Borgarbyggðar vegna mögulegrar inngöngu Dalabyggðar í Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Nú liggur í grófum dráttum fyrir hver kostnaðurinn verður og hvernig verkaskiptingu verður háttað. Stefnt er að gerð samstarfssamnings sem lagður verður fyrir sveitarstjórn fljótlega og vonast er til að vinnunni ljúki fyrir áramót.

Ég fékk þann heiður að afhenda ungum lestrarhestum gjafir og viðurkenningar fyrir frábæran árangur og þátttöku í lestrarbingói sumarsins. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mörg börn tóku þátt og skiluðu glæsilegum árangri.

Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum var einnig haldinn í vikunni. Dalabyggð er eitt aðildarsveitarfélaga samtakanna sem voru stofnuð árið 1996. Markmið þeirra er meðal annars að vinna að lækkun orkukostnaðar til húshitunar á köldum svæðum, stuðla að frekari jarðhitaleit, miðla upplýsingum um orkumál og efla vitund almennings um orkusparnað. Ég var kjörinn í varastjórn samtakanna, en bæði aðal- og varastjórn taka þátt í reglulegum stjórnarfundum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftlagsráðherra ætlaði upphaflega að mæta á fundinn en þurfti að sinna erindum erlendis og mætti á fundinn í gegn fjarfundarbúnað úr aftursætinu á leigubíl.


Miðvikudaginn 7. október mætti ég á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga fyrir hönd Dalabyggðar og staðfesti þar þátttöku sveitarfélagsins í samtökunum. Á fundinum voru samþykktir lagðar fram og kosið í stjórn. Fundurinn var mjög fjölmennur, sem ber vitni um hversu mikil þörf hefur verið fyrir formlegan vettvang sveitarfélaga sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á landbúnaði.


Sama dag fór fram ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en þann fund sækja framkvæmdarstjórar sveitarfélaga. Ánægjulegt er að staða sjóðsins er sterk og í ljósi þess ákvað ráðherra að hækka almenn jöfnunarframlög um 1,4 milljarða króna á árinu, sem mun styrkja fjárhag sveitarfélaga víða um land.

Dagana 8. og 9. október fór fram Fjármálaráðstefna sveitarfélaga. Frá Dalabyggð sóttu ráðstefnuna sex fulltrúar, bæði úr hópi kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélagsins. Ráðstefnan var bæði fróðleg og skemmtileg, en jafnframt mikilvægur vettvangur til að miðla reynslu, bera saman bækur og efla tengslanet sveitarstjórnarfólks víðs vegar af landinu.


Barnó, barnamenningarhátíð Vesturlands, stendur nú yfir og verður dagskrá í boði út allan mánuðinn. Ég mætti á sýninguna Shjówmenn – sirkussýning um sjómennsku og opið sirkusnámskeið sem fram fór að Laugum í Sælingsdal. Við fjölskyldan skemmtum okkur konunglega og enduðum daginn síðan í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar í Búðardal. Það er fátt meira afslappandi en að sitja í gufunni og horfa út yfir sjóinn.

 

– Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei