Bleikur dagur í Dalabyggð

SveitarstjóriFréttir

Starfsfólk stjórnsýsluhúss Dalabyggðar tekur þátt í Bleika deginum í dag til að sýna samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra. Mættu allir í bleiku og var morgunkaffi með bleiku skrauti og veitingum.

Bleiki dagurinn er áminning um mikilvægi forvarna, snemmtækrar greiningar og þess stuðnings sem samfélagið getur veitt þegar á reynir. Með þátttöku okkar viljum við leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni og sýna samkennd og stuðning.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei