Kaffispjall með sveitarstjórn og sveitarstjóra

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra bjóða íbúum í kaffispjall í Auðarstofu (Nýsköpunarsetur, Miðbraut 11 í Búðardal) laugardaginn 24. október nk. frá kl. 10:00 til 11:00.

Hér gefst íbúum tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, spyrja spurninga og taka virkan þátt í að móta samfélagið okkar – eða einfaldlega mæta, hlusta og kynna sér málin yfir heitum kaffibolla.

Tímasetningin er valin með tilliti til þess að allir geti náð á dagskrá Haustfagnaðar sauðfjárbænda í reiðhöllinni sem hefst kl. 11:00.

Kaffi og meðlæti á boðstólnum. Öll velkomin!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei