Á fundi byggðarráð í júní sl. voru samþykktar reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Dalabyggðar.
Í íþróttamannvirkjum Dalabyggðar, þ.e. íþróttamiðstöðinni í Búðardal, eru tveir skjáir þar sem hægt er fá birtar auglýsingar sem uppfylla eftirfarandi reglur, að kostnaðarlausu.
Á skjánum geta lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki fengið birta viðburði s.s. fundi, hátíðir, mót eða annað sem þau standa fyrir í Dalabyggð eða upplýsingar sem eiga erindi við almenning að öðru leyti. Miðað er við að viðburður sé opinn öllum, að minnsta kosti öllum á ákveðnum aldri eða kyni. Einnig geta félög fengið þar birt merki sín og dagskrá á meðan mótum á þeirra vegum stendur í mannvirkjunum.
Á tímabilinu 1. júní til og með 31. ágúst ár hvert er fyrirtækjum í Dalabyggð sömuleiðis heimilt að auglýsa þjónustu sína, svo lengi sem þær auglýsingar brjóta ekki í bága við aðrar greinar reglnanna. Slík auglýsing gengur allt tímabilið og kostar tímabilið 15.000 kr.- en jafnframt áfram heimilt að agulýsa viðburði að kostnaðarlausu.
Auglýsingar sem á að birta þurfa að skila sér tímanlega á netfangið dalir@dalir.is til að fá birtingu. Ekki er hægt að tryggja birtingu ef auglýsing skilar sér innan 48 klst. fyrir viðburð. Auglýsingar þurfa að skila sér tilbúnar til birtingar. Auglýsingu skal skila í stærð 1080×1920 px til að fá birtingu. Athugið að starfsfólk Dalabyggðar tekur ekki að sér uppsetningu auglýsinga.
Ekki er leyfilegt að auglýsa áfengi, tóbak og/eða annað sem ekki á erindi til barna og unglinga. Bannað er að setja upp auglýsingar sem varða stjórnmál, trúmál eða sem brjóta í bága við jafnrétti kynjanna eða almennt velsæmi.
Ekki er heimilt að hengja upp auglýsingar utan skjáa. Þær mega þó, ef þær uppfylla sömu reglur, liggja í afgreiðslu eða á borðum í kaffihorni. Starfsfólki er heimilt að fjarlægja auglýsingar sem eru hengdar upp og sömuleiðis auglýsingar sem dreift er í leyfisleysi í mannvirkjunum. Aðili sem gerist brotlegur við þessa grein skal hljóta aðvörun eftir fyrsta brot. Komi það fyrir aftur verður viðkomandi ekki heimilt að hafa auglýsingar í mannvirkjunum.
Reglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins undir Samþykktir og reglur
