Skráning hafin á Mannamót 2027 – Dalabyggð styrkir ferðaþjóna

DalabyggðFréttir

Ferðaþjónustuvikan 2027 framundan

Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi eru hvattir til að taka dagana 26.-28. janúar 2027 frá en þá fer Ferðaþjónustuvikan 2027 fram á höfuðborgarsvæðinu. Vikunni er ætlað að efla samstarf, fagmennsku og tengslamyndun innan ferðaþjónustunnar og koma þar saman aðilar víðs vegar af landinu. Að viðburðinum standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Ferðamálastofa og Íslandsstofa. Formlegri dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar lýkur með Mannamótum en daginn eftir fer fram MidAtlantic ferðakaupstefnan á vegum Icelandair, þar sem innlendir ferðaþjónustuaðilar funda með erlendum kaupendum og samstarfsaðilum.

Mannamót 2027

Hápunktur vikunnar er Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem haldin verða í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar. Mannamót eru stærsti kynningar- og tengslamyndunarvettvangur landsbyggðarferðaþjónustunnar þar sem fyrirtæki kynna þjónustu sína fyrir ferðaþjónustufólki, ferðaskrifstofum og öðrum fagaðilum.

Í tengslum við markaðssetningu ferðaþjónustu í Dalabyggð vill sveitarfélagið bjóða ferðaþjónum sem ætla sér að taka þátt á Mannamóti 2027 að greiða þátttökugjaldið fyrir þá.

Mannamót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru víðs vegar um landið. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda og efla tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá.

Upplýsingar um aðstöðu og uppsetningar bása má finna hér: Upplýsingar fyrir sýnendur

Fyrirtæki sem ekki eru aðilar að markaðsstofu geta haft samband við sína landshlutaskrifstofu sem á Vesturlandi er Markaðsstofa Vesturlands. Þátttökugjald er 36.500 kr. + vsk.

Dalabyggð mun styrkja sína ferðaþjóna sem sækja Mannamót með því að greiða þátttökugjaldið fyrir þá!
ATH – ekki er nóg að skrá sig, viðkomandi verður að mæta og taka þátt á Mannamóti. Dalabyggð áskilur sér rétt til að innheimta þátttökugjaldið ef viðkomandi mætir ekki á sýninguna þann 28. janúar n.k.
Er þetta gert í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands þannig að reikningur fyrir þátttöku þeirra ferðaþjóna sem starfa í sveitarfélaginu, skrá sig á Mannamót 2027 og mæta, fer til Dalabyggðar.

Skráning sýnenda og gesta er þegar hafin og um að gera að skrá sig sem fyrst: SKRÁ MIG 

Skráningu sýnenda lýkur þann 16. desember 2026

Ef þið þarfnist nánari upplýsinga s.s. varðandi uppröðun, skipulag o.s.frv. bendum við á okkar góða fólk hjá Markaðsstofu Vesturlands.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei