Heitavatnslaust norðan Haukadalsár – sundlaugin lokuð

Kristján IngiFréttir

Vegna breytinga á stofnlögn verður heitavatnslaust í Búðardal og á heimilum norðan Haukadalsár frá kl. 9:00 til kl. 17:00 laugardaginn 31. október 2026. Áætlað er að áhleyping hefjist aftur um kl. 15:00 og fullum afköstum verði náð fyrir kl. 18:00.

Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof.

Af þessum sökum verður sundlaugin í Búðardal lokuð á laugardaginn, en líkamsræktin verður opin samkvæmt auglýstum opnunartíma.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei