Bókagjafir til Héraðsbókasafns

DalabyggðFréttir

Af og til berast bókasafninu gjafir frá einstaklingum í okkar góða samfélagi. Stundum er um að ræða bækur sem ekki eru til fyrir á safninu og koma þær gjafir sér einstaklega vel.

Bókavörður vill koma á framfæri kærum þökkum til þeirra sem á þennan hátt hugsa til safnsins og um leið hvetja fólk til að líta við og nýta sér þann góða bókakost sem þar er.

Opnunartími bókasafnsins er sem hér segir:
Þriðjudagar kl. 12:30-17:30
Fimmtudagar kl. 12:30-17:30
* Bókasafnið er lokað beri almenna frídaga upp á opnunardaga.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei