Jákvæð rekstrarniðurstaða og lækkandi skuldir þrátt fyrir umfangsmestu innviðauppbyggingu í sögu Dalabyggðar.

SveitarstjóriFréttir

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027-2030 var tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn í síðustu viku. Áætlunin endurspeglar skýra áherslu á ábyrgan rekstur, áframhaldandi öfluga þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og uppbyggingu nauðsynlegra innviða.
Í ágúst 2026 var lagt fram milliuppgjör á fjárhag sveitarfélagsins sem sýndi töluverðan rekstrarhalla á fyrstu mánuðum ársins. Þar vógu þungt krefjandi efnahagsaðstæður, áframhaldandi verðbólga og ýmis ófyrirséð útgjöld. Jafnframt lauk á árinu stærstu fjárfestingu í 30 ára sögu sveitarfélagsins, byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar. Heildafjárfesting við framkvæmdina voru um 1500 milljónir króna og er hún nú þegar mikil lyftistöng fyrir samfélagið og fjárfesting til framtíðar. Verkefnið var að stórum hluta fjármagnað með lántöku og hefur því óhjákvæmilega áhrif á afborganir og fjármagnskostnað á yfirstandandi ári.
Til að bregðast við stöðunni var ákveðið síðastliðið sumar að taka upp fjárhagsáætlun yfirstandandi árs, rekstrarliði og starfsemi sveitarfélagsins. Lögð var áhersla á aukið aðhald, forgangsröðun verkefna og að draga úr fjárfestingum þar sem það var mögulegt. Sú vinna, ásamt auknum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, hefur skilað töluverðum árangri og er nú gert ráð fyrir lítillega jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2026.
Fjárhagsáætlun 2027 sýnir að fjárhagsstaða Dalabyggðar er traust, þrátt fyrir umfangsmikla innviðauppbyggingu undanfarinna ára og þær áskoranir sem felast í háu vaxtastigi, verðbólgu og auknum fjármagnskostnaði. Til að mæta þessum áskorunum er búið að fara ítarlega í gegn um fjárhaginn eins og hefur verið rakið en auk þess er lagt til að álagningarhlutfall fasteignaskatts á A hluta verði 0,60% og á C hluta 1,65% tímabundið. Álagningarhlutfall útsvars helst óbreytt í 14,97%.
Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) er jákvæð öll árin sem áætlunin tekur til. Skuldaviðmið samstæðunnar er áætlað að verði hæst um 105% á yfirstandandi ári en verður samkvæmt útkomuspá í 96% við lok árs 2027 s.s áfram vel innan lögbundinna marka sem er 150%. Gert er ráð fyrir áframhaldandi niðurgreiðslu skulda og bættri lausafjárstöðu á næstu árum. Meginmarkmið sveitarfélagsins er að tryggja jafnvægi í rekstri, standa við skuldbindingar sínar, viðhalda góðu þjónustustigi og halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu innviða. Fjárfestingaráætlun hljóðar upp á tæplega 60 milljónir á næsta ári en það sem vegur þyngst er viðhald við Auðarskóla og lagfæringar á skólalóð, uppbygging gatna og viðhald við húsnæði hjúkrunarheimilisins Silfurtúns.
Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var miðað við að allar almennar gjaldskrár hækki að hámarki um 2,5%. Þá var sérstaklega horft til hagsmuna barnafjölskyldna og leitast við að hækka ekki gjaldskrár sem snúa að börnum og ungmennum, til að draga úr áhrifum hækkana á heimilin í sveitarfélaginu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei