Nafnasamkeppni fyrir Íþróttamiðstöðina í Búðardal

DalabyggðFréttir

Dalabyggð leitar að nýjum nöfnum á íþróttamiðstöðina og sundlaugina í Búðardal og óskar eftir hugmyndum frá íbúum.

Við hvetjum alla til að senda inn tillögur. Sérstaklega skemmtilegt væri ef nöfnin tvö tengdust á einhvern hátt og mynduðu góða heild.

Hvernig tek ég þátt?

Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan og fylltu út Microsoft Forms-eyðublaðið. Þar skráir þú nafn þitt, netfang og tillögur að nöfnum fyrir íþróttamiðstöðina og sundlaugina.

Lokað verður fyrir eyðublaðið þann 25. nóvember kl. 23:45.

Þegar tillögum hefur verið safnað verða bestu nafnatillögurnar valdar og settar í íbúakosningu þar sem kosið verður um besta nafnið.

Sá sem á sigurhugmyndina fær frítt árskort í sund og líkamsrækt!

Smelltu hér til að senda inn nafnatillögur

Athugasemdum og spurningum má beina til Lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar:
Einarbjorn@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei