Auglýst er eftir umsóknum í uppbyggingasjóð Vesturlands. Veittir verða atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir, menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna.
Umsóknarferlið er á Ísland.is og notast er við Íslykil til innskráningar.
Nánari upplýsingar má fá í síma 433 2310 eða senda fyrirspurn til uppbyggingasjodur@ssv.is. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 17. janúar 2018.