Tófuspjall

DalabyggðFréttir

Snorrastofa í Borgarfirði og Þaulsetur á Skarðsströnd bjóða upp á tófuspjall Snorra á Augastöðum í Tjarnarlundi fimmtudagskvöldið 7. mars að loknum mjöltum kl. 20:30.
Fyrirlesari er Snorri Jóhannesson bóndi og refaskytta á Augastöðum í Borgarfirði. Í fyrirlestrinum fjallar Snorri um refinn frá ýmsum sjónarhornum auk mynda.
Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestraraðar Snorrastofu í Borgarfirði og sló aðsóknarmet þar þegar húsnæði bókhlöðunnar fylltist svo varla varð þverfótað fyrir stólum og fólki.
Í lok fyrirlestursins er boðið til kaffi og að þeim loknum umræðna um málefni kvöldsins. Snorrastofa og Þaulsetur hvetja alla áhugasama til að koma og njóta þess að hlusta á áhugavert málefni í meðförum þess, sem best til þekkir. Aðgangur er kr. 500.

Snorrastofa

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei