Kór Menntaskólans við Hamrahlíð

DalabyggðFréttir

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi um Vesturland og Strandir dagana 26. – 28. mars.
Kórinn heldur tónleika í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal laugardaginn 26. mars kl. 17 og í Auðarskóla mánudaginn 27. mars kl. 14:30.
Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana.
Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni um Vesturland eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, G. F. Händel, Béla Bartók, Jón Þórarinsson, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t. d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga.

Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 87 nemendum á aldrinum 16 – 20 ára. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Þetta er í fyrsta sinn sem Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heimsækir Búðardal, Reykhóla og Hólmavík.
Fararstjórar í ferð kórsins eru rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Lárus H. Bjarnason og Jóhann Ingólfsson kennari.

Laugardagur 26. mars

Kl. 17 tónleikar í félagsheimilinu Dalabúð, Búðardal.

Sunnudagur 27. mars

Kl. 14 sungið við messu í Reykhólakirkju.
Kl. 20 tónleikar í Hólmavíkurkirkju.

Mánudagur 28. mars

Kl. 10 skólatónleikar fyrir Grunnskólann á Hólmavík.
Kl. 14:30 skólatónleikar fyrir Auðarskóla
Kl. 20 tónleikar í Stykkishólmskirkju.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei