12.06.2025Kvensjúkdómalæknir í Búðardal Helga Medek kvensjúkdómalæknir verður til viðtals á Heilsugæslustöðinni í Búðardal 18. og 19. júní n.k. Tímapantanir eru í síma 432 1450 alla virka daga kl. 09–15Skoða betur
06.06.2025Sveitarstjórn Dalabyggðar – 257. fundur FUNDARBOÐ 257. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 10. júní 2025 og hefst kl. 16:00 DAGSKRÁ: Almenn mál 1. 2205013 – Kjör oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar Dalabyggðar 2. 2205014 – Kosning aðal- og varamanna í byggðarráð sem og formanns og varaformanns byggðarráðs. 3. 2205015 – Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar 4. 2306021Skoða betur
05.06.2025Tilnefning: Dalamaður ársins 2025 Ákveðið hefur verið að standa fyrir tilnefningu um Dalamann ársins 2025 og tilkynna um niðurstöðuna á hátíðarhöldum 17. júní Hérna neðst í fréttinni má finna rafrænt eyðublað þar sem eru tvær spurningar sem þarf að svara til að atkvæðið sé tekið gilt. Þetta tilnefningarform verður opið til og með fimmtudeginum 12. júní nk. Að því loknu fara tilnefningar með rökstuðningi fyrir menningarmálanefndSkoða betur
04.06.2025Skóflustunga tekin að parhúsi í Búðardal Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdastjóri Leigufélagsins Bríetar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýbyggingu að Borgarbraut 2 í Búðardal. Um er að ræða parhús og er hvor íbúð um sig 63m2, íbúðirnar saman standa af alrými, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og forstofu. Vonir eru bundnar við að verkið klárist í júlí og íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingarSkoða betur
04.06.2025Sumarbingó bókasafnsins 2025 (fyrir 5-12 ára) Sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu verður nú endurtekið fjórða sumarið í röð. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. SkólarSkoða betur
04.06.2025Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu í Búðardal Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð í raðhús að Bakkahvamm 15a. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð um 84m². Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga. Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.Skoða betur
04.06.2025Breyttur opnunartími Heilsugæslunnar á föstudögum Breyttur opnunartími Heilsugæslunnar á föstudögum tekur gildi 20. júní n.k. Frá og með föstudeginum 20. júní n.k. verða opnunartímar Heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal eftirfarandi: Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 – 15:00 Föstudaga kl. 9:00 – 12:00 Stytting opnunartíma á föstudögum hefur nú þegar tekið gildi á öllum öðrum stöðvum á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að Akranesi undanskyldu. Þetta er gert í kjölfarSkoða betur
28.05.2025Garðyrkjan blómstrar á bókasafninu Héraðsbókasafn Dalasýslu býður gestum og gangandi að grípa með sér eintak af tímariti um garðyrkju að kostnaðarlausu. Kassinn er staðsettur fyrir framan bókasafnið svo hægt er að nálgast eintök utan opnunartíma. Einnig minnum við á að frækassinn, Dalafræ, skipt og skundað, er kominn á sinn stað. Hugmyndin gengur út á að fólk getur komið með afgangsfræ og/eða umframmagn af fræjum,Skoða betur
16.05.2025Laus störf: Stjórnunarstöður í Auðarskóla skólaárið 2025-2026 Auðarskóli auglýsir eftir lausnamiðuðum leiðtogum í stjórnendstöður fyrir skólaárið 2025-2026: Deildarstjóra í grunnskóla-Tímabundin staða til eins árs Aðstoðarleikskólastjóra Verkefnastjóra sérkennslu Auðarskóli leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðu deildarstjóra frá 16. september 2025 og til og með 31. júlí 2026. Ráðið verður í stöðu aðstoðarleikskólastjóra frá 6. ágúst 2025. RáðiðSkoða betur
15.05.2025Götusópun í Búðardal 2025 Götusópun verður hefst í Búðardal mánudaginn 19. maí nk. Við viljum biðja íbúa um að sjá til þess að ökutæki og annað sé ekki að hefta för um götur þessa daga svo árangurinn verði sem bestur.Skoða betur
15.05.2025Viltu nýta frístundastyrk vegna tónlistarskóla? Greiðsluseðill vegna tónlistarnáms við tónlistardeild Auðarskóla hefur verið sendur út. Til að sækja um að nýta frístundastyrk barns til niðurgreiðslu gjalds þarf að skrá barnið á Abler. Það er gert með því að skrá barnið eftir því sem við á hérna: Abler – DalabyggðSkoða betur
14.05.2025Laus störf: Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026 Auðarskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2025-2026: Umsjónarkennari á miðstigi Umsjónarkennari á elsta stigi Leikskólakennarar Tónlistarkennari Faggreinakennarar: Myndmennt, hönnun og smíði, tónmenntakennari Auðarskóli leitar að metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2025. Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem erSkoða betur