28.03.2025Skrifstofa sýslumanns lokuð 1. og 15. apríl Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð þriðjudaginn 1. apríl og sömuleiðis þriðjudaginn 15. apríl nk.Skoða betur
25.03.2025Sauðburðarbakkelsi – Kvenfélagið Fjóla Kvenfélagið Fjóla býður til sölu sauðburðarbakkelsi fyrir svanga bændur og búalið vorið 2025. Kleinur 1 kg 2500 kr Ástarpungar 1 kg 2500 kr Pitsasnúðar 1 kg 2500 kr Kanilsnúðar 1 kg 2000kr Hjónabandssæla 3000 kr Flatkökur 5 stk (ath 2 heilar + 1/2 flatkaka)1000kr Rúgbrauð um 500 gr 1000 kr. A.T.H sama góða verðið og vorið 2024 Pantanir berist tilSkoða betur
25.03.2025Laus störf: Aðhlynning á Fellsenda Óskum eftir starfsmönnum í sumarafleysingar og fastar stöður við umönnun. Hjúkrunarheimilið sérhæfir sig í þjónustu við geðfatlaða og er staðsett á fallegum stað í Dölunum. Starfið er mjög fjölbreytt og lærdómsríkt. Um er að ræða vaktarvinnu en starfshlutfall getur verið samkomulag. Áhugasömum er velkomið að hringja eða koma í heimsókn og kynna sér starfið, einnig er hægt að fara áSkoða betur
24.03.2025Opið fyrir styrkumsóknir – Hollvinasamtök Dalabyggðar Hollvinasamtök Dalabyggðar auglýsa eftir styrkumsóknum. Tilgangur samtakanna er að styðja við verkefni í Dalabyggð er varða eflingu byggðar, atvinnulífs og menningar eða eru af því tagi að standa vörð um sögu og starf svæðisins. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Hámarksstyrkur 2025 er 100.000 kr.- á hvert verkefni. Umsóknum skal skila á netfangið: hvs.dalir@gmail.comSkoða betur
24.03.2025Ársskýrsla DalaAuðs 2024 komin út Ársskýrsla DalaAuðs 2024 er komin út og er nú aðgengileg á vef Byggðastofnunar sem og hér fyrir neðan. Árlega eru haldnir íbúafundir í tengslum við DalaAuð, þar sem lögð eru fram markmið verkefnisins. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framgangi verkefnisins árið 2024. Þar er sagt frá þeim verkefnum sem sett hafa verið á dagskrá á íbúafundum, veittum styrkjum úrSkoða betur
24.03.2025Laust starf: Umsjónarmaður á Fellsenda Hjúkrunarheimilið Fellsendi auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns. Um fullt starf er að ræða frá 1. maí 2025. Unnið er eftir Betri vinnutíma og er því vinnuvikan 36 stundir. Hjúkrunarheimilið Fellsendi er sérhæft í að sinna geðfötluðum og er á fallegum stað í Dölunum. Við leitum að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni og verðaSkoða betur
21.03.2025Sveitarstjórn Dalabyggðar – 254. fundur FUNDARBOÐ 254. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 25. mars 2025 og hefst kl. 17:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2502008 – Ársreikningur Dalabyggðar 2024 2. 2410010 – Brothættar byggðir DalaAuður 3. 2410009 – Fjallskilasamþykkt 4. 2502004 – Varúðarniðurfærsla viðskipta- og skattkrafna v/2024 5. 2301065 – Ljárskógarbyggð 6. 2502011 – Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi fyrir vindmælingarmastrSkoða betur
20.03.2025Laus störf: Hótelstarfsfólk óskast á Dalahótel Fjölbreytt störf í boði á líflegum og skemmtilegum vinnustað. Hótelið heimsækja bæði erlendir og innlendir ferðamenn sem og hópar, t.d. ættarmót. Einnig koma fjölmargir til að heimsækja tjaldsvæðið okkar og sundlaugina. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja vinna úti á landi yfir sumartímann í friðsælu og fallegu umhverfi. Menntunar- og hæfniskröfur Almenn góð menntun Góð tungumálakunnátta æskileg Glaðlegt viðmót ogSkoða betur
19.03.2025PEPPANDI – fyrirlestur fyrir foreldra 20. mars FIMMTUDAGINN 20. MARS KL. 17:00 Í NÝSKÖPUNARSETRINU AÐ MIÐBRAUT 11 Í BÚÐARDAL Fyrirlestraröð um hugrekki, valdeflingu og jákvæðni með Kristjáni Hafþórssyni. Kristján heldur m.a. úti hlaðvarpinu “Jákastið” Fyrirlestrarnir eru ætlaðir öllum, þar sem farið er yfir hvernig hægt er að kljást við verkefni daglegs lífs með jákvæðni að vopni. Fyrr um daginn verður Kristján með fyrirlestur fyrir elsta stig Auðarskóla.Skoða betur
19.03.2025Augnlæknir til viðtals í Búðardal Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður til viðtals á Heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 3. apríl n.k. Tímapantanir eru í síma 432 1450 alla virka daga kl. 09–15Skoða betur
17.03.2025Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka Sveitarstjórn Dalabyggðar er heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar,- íþrótta,- æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf skv. gildandi reglum. Rétt til styrks eiga félög og félagasamtök sem uppfylla eftirtalin skilyrði: a) eru fasteignaeigendur í Dalabyggð b) reka starfsemi sína í húsnæðinu sbr. 1. gr.Skoða betur
17.03.2025Sóknin heldur áfram – Dalabyggð Það er ánægjulegt að segja frá því að það hafa rúmar 52 milljónir verið veittar til ýmissa framfaraverkefna í Dalabyggð á allra síðustu vikum. Níu verkefni fengu styrk úr Menningarmálaverkefnasjóði Dalabyggðar þann 15. janúar en til úthlutunar voru 1.000.000 kr.- Þann 24. janúar var úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Fengu 14 verkefni úr Dalabyggð styrki, samtals að upphæð 9.100.000 kr.- ÞáSkoða betur