Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi 19. mars 2024 að auglýsa skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar tillögu að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 vegna Ólafsdals skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið aðalskipulagsbreytingar er að auka svigrúm fyrir gististarfsemi í Ólafsdal með því að breyta núverandi afþreyingar- og ferðamannasvæði AF10 við Ólafsdalsskóla í verslunar- og þjónustusvæði. Á breytingarsvæðinu verður áfram í gildi …
Skrifstofa Dalabyggðar lokuð föstudaginn 22. mars
Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð föstudaginn 22. mars 2024 vegna fræðsluferðar starfsmanna. Opnum kl. 09:00 mánudaginn 25. mars og bendum jafnframt á netfangið dalir@dalir.is Með vinsemd, Sveitarstjóri
Kyrrstaða er ekki valkostur – frá sveitarstjóra
Þann 1. febrúar sl. voru liðnir 18 mánuðir, eitt og hálft ár, síðan ég tók við starfi sveitarstjóra í Dalabyggð og þann 8. febrúar sl. var haldinn 20. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar síðan samstarf mitt við þann öfluga hóp hófst. Það hefur ýmislegt áunnist á þeim tíma sem um ræðir og enn fleira er í farvatninu. Það ríður á að samstarf …
Jólakveðja og fréttamoli frá verkefnastjóra DalaAuðs
Ertu með frábæra hugmynd? Frumkvæðissjóður DalaAuðs opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2024. Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs 1. febrúar 2024 og verður tekið við umsóknum út febrúarmánuð. Í upphafi nýs árs er því upplagt að skrifa hugmyndir sínar á blað og undirbúa sig fyrir umsóknarferlið. Sem fyrr aðstoðar Linda Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri DalaAuðs umsækjendur og hvetjum …
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 241.fundur
FUNDARBOÐ 241. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn á fjarfundi, þriðjudaginn 19. desember 2023 og hefst kl. 11:30 Dagskrá: Almenn mál 1. 2307001 – Fjárhagsáætlun 2024, álagningarhlutfall útsvars. Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, undirritað dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar sveitarfélaga. Til skýringar þá mun …
Lokaútkall þetta árið vegna frístundastyrks fyrir börn og ungmenn í Dalabyggð
Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. desember ! Hér meðfylgjandi slóð á annars vegar umsóknareyðublað og hins vegar reglur um frístundastyrk. https://dalir.is/wp-content/uploads/2020/01/Skra_0079434.pdf https://dalir.is/wp-content/uploads/2020/09/Fristundastyrkur-fyrir-born-og-ungmenni.pdf
Aukið vöruval í verslun KM þjónustunnar ehf. í Búðardal
Við vekjum athygli á eftirfarandi tíðindum sem fram koma á facebook síðu KM þjónustunnar ehf. í Búðardal: „Nú erum við komnir af stað með smá matvöru og dagvöru verslun í K.M. þjónustunni. Hagstætt verð eftir bestu getu. Endilega kíkja við það koma einnig inn mjólkurvörur og brauðálegg og verður til í fyrramálið. Viljum einnig minna á að jóluvörurnar eru komnar …
Kveðja til íbúa Grindavíkur
Dalabyggð sendir íbúum Grindavíkur hlýjar kveðjur vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru uppi í tengslum við jarðhræringarnar á Reykjanesskaga. Hugur okkar, líkt og landsmanna allra, er hjá ykkur. Færum jafnframt viðbragðsaðilum kveðjur og þakkir fyrir sín störf og óskum þeim góðs gengis í verkefnunum framundan.
Sveitarstjórn Dalabyggðar – fundarboð á fund nr. 238
FUNDARBOÐ 238. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 12. október 2023 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2309007 – Staða innviða – dagvöruverslun og staða orkuskipta á bifreiðaflota landsmanna Rætt um stöðu dagvöruverslunar í Dalabyggð í ljósi samskipta við stjórn og stjórnendur Samkaupa í kjölfar áskorunar sem sveitastjórn Dalabyggðar samþykkti einum rómi á …
Skrifstofa Sýslumanns lokuð 10. október.
Skrifstofa Sýslumanns á Vesturlandi í Búðardal er lokuð fimmtudaginn 10. október.