Kæri vinir,
Þann 16. maí nk. fara fram sveitarstjórnarkosningar og af því tilefni vil ég hvetja Dalamenn til að íhuga alvarlega að gefa kost á sér til starfa í sveitarstjórn Dalabyggðar næsta kjörtímabil um leið og ég þakka fyrir góða mætingu á kynningarfund framkominna frambjóðenda í Dalabúð þann 7. maí sl. og þær umræður sem þar fóru fram.
Sveitarstjórnarstörf eru í senn bæði krefjandi og skemmtileg en einnig gefandi vettvangur til að leggja sitt af mörkum í þágu samfélagsins. Þar gefst fólki tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun byggðarinnar, þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og þau fjölmörgu verkefni sem gera gott samfélag enn betra. Sveitarstjórnarmál eru nefnilega ekkert annað en daglegt líf fólks – bara stundum með aðeins fleiri fundargerðum og jú, stundum aðeins fleiri kaffibollum og ekki spillir fyrir vilji til samvinnu, samtals og virkrar hlustunar. Góð samvinna á því kjörtímabili sem nú er að líða undir lok, innan stjórnsýslu og ekki síður innan samfélagsins alls í Dölum, á stóran þátt í því hve okkur hefur miðað vel áfram hér í Dölum – öflug liðsheild hefur og mun skipta sköpum til framtíðar litið.
Í Dalabyggð er viðhaft persónukjör og því er mikilvægt að áhugasamt fólk stígi fram og láti vita af áhuga sínum. Kjörnir eru sjö aðalmenn í sveitarstjórn og sjö varamenn og því þarf fjölbreyttan og öflugan hóp fólks sem hefur áhuga á að leggja sitt af mörkum til samfélagsins okkar.
Dalabyggð er samfélag með sterkan grunn, mikinn kraft og fjölmörg tækifæri framundan. En ekkert gerist af sjálfu sér. Framþróun byggir á fólki sem hefur vilja til að taka þátt, koma með hugmyndir, takast á við verkefni og hafa áhrif á nærumhverfi sitt.
Því vil ég hvetja Dalamenn til að stíga fram, taka þátt og íhuga þetta áhugaverða og mikilvæga hlutverk í þágu samfélagsins.
Undirritaður er tilbúinn til samtals við áhugasama frambjóðendur um stöðu mála og möguleg áform um enn frekari styrkingu innviða hér í Dölum.
Áfram Dalir og Dalabyggð !
Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
