18.11.2022
Jólagjöf til starfsmanna Dalabyggðar
Dalabyggð auglýsir eftir framleiðindum, veitinga/verslunar- og/eða þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna Dalabyggðar. Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf ásamt upptalningu á aðilum í Dalabyggð sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og/eða þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Skoða betur







