01.10.2025
Bergþóra Jónsdóttir lætur af störfum
Í gær, þriðjudaginn 30. september var haldið kveðjuhóf í Auðarskóla að lokinni kennslu til heiðurs Bergþóru Jónsdóttur. Bergþóra lýkur nú störfum eftir 37 ára gæfuríkan starfsferil í skólanum okkar. Guðmundur Kári Þorgrímsson starfandi skólastjóri, hélt tölu í tilefni þessa og Björn Bjarki Þorsteinsson færði Bergþóru þakklætisvott frá Dalabyggð. Bergþóra hefur sinnt óeigingjörnu starfi m.a. við kennslu og sérkennslu hjá Auðarskóla.
Skoða betur











