Ábending til rekstraraðila vegna úrgangsmála

DalabyggðFréttir

Að gefnu tilefni viljum við benda á að grenndarstöðvar fyrir úrgang eru eingöngu ætlaðar heimilisúrgangi frá frístundahúsum í sveitarfélaginu og greiða eigendur þeirra sorphirðugjald fyrir þá þjónustu.

Vegna þessa þurfa rekstraraðilar sjálfir að hafa samband við sorphirðufyrirtæki og gera samning við það um sorphirðu frá sínum rekstri. Bent er á að fyrirtæki geta keypt klippikort á endurvinnslustöð sveitarfélagsins að Vesturbraut 22 fyrir  losun á gjaldskyldum úrgangi þar.

Með flokkun sorps tökum við þátt í því að draga úr ágengni á náttúru og losun gróðurhúsalofttegunda með það að leiðarljósi að tryggja lífskjör íbúa í Dalabyggð og þátttöku samfélagsins í hringrásarhagkerfinu.

Því viljum við hvetja þá rekstraraðila í sveitarfélaginu sem ekki hafa gert það nú þegar, til að hafa samband við sorphirðufyrirtæki, ganga frá samningum um sorphirðu og leggja þannig sitt af mörkum í umhverfisvernd og ábyrgum fyrirtækjarekstri í Dalabyggð. Við bendum á að í samningi Dalabyggðar við Íslenska gámafélagið er skuldbinding fyrirtækisins til að bjóða rekstraraðilum í sveitarfélaginu þjónustu vegna sorphirðu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei