Af fundi um félagsheimili í Dalabyggð: Tjarnarlundur og Staðarfell

DalabyggðFréttir

Fimmtudaginn 6. maí hélt menningarmálanefnd Dalabyggðar samráðsfund vegna félagsheimila í Dalabyggð. Um er að ræða tvo fundi, fundurinn í fyrra kvöld fjallaði um Árblik og Dalabúð og fundurinn í gær var vegna Tjarnarlundar og Staðarfells.

Ath. að á fundinum voru rangar tölur fyrir kostnað pr. ár á Staðarfelli (hefur verið leiðrétt í glærum hér fyrir neðan) en samtala fyrir rekstur var rétt, þ.e. 4.459.277 kr. yfir 5 ára tímabil.

Upptöku af fundinum 6. maí má nálgast á YouTube-síðu Dalabyggðar og í spilara hérna fyrir neðan. Þeir sem gátu ekki setið fundinn er bent á að hægt er að skila inn ábendingum og hugmyndum á netfangið johanna@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar að Miðbraut 11, 370 Búðardal. Erindin sem berast verða tekin fyrir á næsta fundi menningarmálanefndar.

Glærur frá fundi – Tjarnarlundur og Staðarfell

Spilunarlisti frá ráðstefnu um aukna nýtingu félagsheimila og menningarhúsa á Vesturlandi.

Greinargerð um menningarþörf og félagsheimili í Dalabyggð (einnig aðgengileg í fundargerð 16. fundar menningarmálanefndar Dalabyggðar).

Félagsheimilin í Dalabyggð- samantekt (einnig aðgengileg í fundargerð 15. fundar menningarmálanefndar Dalabyggðar).

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei