Álagning fasteignagjalda 2022

DalabyggðFréttir

Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Island.is.

Fyrir þá sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 15. febrúar er 3% staðgreiðsluafsláttur.

Einhverjir vilja leggja beint inn fyrir fasteignagjöldunum, þá þarf að muna að senda tilkynningu á bokhald@dalir.is
Reikningsupplýsingar fyrir greiðslu fasteignagjalda eru: kt. 510694-2019 rkn.nr. 0312-26-1818

Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur aðeins birtir á Island.is. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í tölvupósti eða útprentaðan geta sent beiðni um slíkt á dalir@dalir.is eða hringt í skrifstofu Dalabyggðar á símatíma kl. 9-13, síminn er 430 4700.

Nánari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda er að finna hér: Álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda 2022

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei