Alþingiskosningar 2017

DalabyggðFréttir

Kjörfundur í Dalabyggð vegna Alþingiskosninga laugardaginn 28. október 2017 fer fram á Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11 í Búðardal. Kjörfundur hefst klukkan 10:00 og verður slitið kl. 20:00.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar innanlands fer fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Upplýsingar um kjörstaði og afgreiðslutíma vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar er hægt að nálgast á vefsíðu sýslumanna.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis fer fram á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins.
Kjörskrá
Kjörskrá Dalabyggðar vegna Alþingiskosninga laugardaginn 28. október 2017 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagins alla virka daga kl. 10-14. Einnig geta kjósendur séð hvar þeir eru á kjörskrá á kosningavef dómsmálaráðuneytisins.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

Kjörskrá verður lögð fyrir fund sveitarstjórnar 24. október nk. til staðfestingar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei