Fimmtudaginn þann 5. maí næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla.
Skemmtiatriði verða í umsjón nemenda grunnskóladeildar.
Boðið verður upp á súpu og meðlæti.
Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 17:00, húsið opnar 16:30.
Áætlað er að dagskrá og matur taki allt að tveimur klukkustundum.
Miðaverð er 1.000 kr. á mann fyrir 6 ára og eldri, frítt fyrir nemendur skólans.
– Nemendur Auðarskóla