Árshátíð Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Fimmtudaginn 21. mars verður árleg árshátíð nemenda Auðarskóla í Dalabúð kl. 18.
Kaffiveitingar eru að lokinni skemmtun og eru þær eins og áður í boði foreldra.
Áætlað er að dagskrá og kaffiveitingar taki rúmlega tvær klukkustundir. Diskótek verður síðan til kl. 23.

Miðaverð er 700 kr fyrir 6 ára og eldri. Nemendur Auðarskóla greiða ekki aðgangseyri.
Allir eru velkomnir á árshátíðina; systur, bræður, mömmur, pabbar, ömmur, afar, frænkur, frændur, vinkonur og vinir nemenda.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei