Auðarskóli – Upplestrarkeppni

DalabyggðFréttir

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Auðarskóla á föstudaginn. Keppendur úr 7. bekk voru átta að þessu sinni. Keppendur stóðu sig afar vel og var keppnin óvenjulega tvísýn þetta árið.
Tveir þátttakendur voru valdir til að keppa á lokahátíðinni ásamt einum varamanni.Fyrir valinu urðu Benedikt Máni Finnsson og Kristín Þórarinsdóttir. Varamaður þeirra verður Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir.
Dómarar voru Björn Stefánsson, Valdís Einarsdóttir og Guðrún María Einarsdóttir og áttu þau úr vöndu að ráða.

Sameiginleg keppni fyrir skóla á Vesturlandi verður haldin 6. april næstkomandi í Leifsbúð. Þar munu keppa ásamt Auðarskóla; Laugargerðisskóli, Grunnskólinn Borgarnesi, Heiðaskóli og Grunnskóli Borgarfjarðar.

www.audarskoli.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei