Ballið á Bessastöðum

DalabyggðFréttir

Föstudaginn 18. mars síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Hólmavíkur fjölskyldusýninguna Ballið á Bessastöðum. Sýning var hluti af Barnamenningarhátíð Vestfjarða sem haldin var á Hólmavík að þessu sinni og stóð yfir í viku með tilheyrandi dagskrá og skemmtun og tókst afar vel upp.
Ballið á Bessastöðum hefur verið sýnt nokkrum sinnum á Hólmavík við góðar undirtektir. Ákveðið var að láta þar ekki staðar numið heldur fara í leikferð til Búðardals og sýna í Dalabúð sunnudaginn 3. apríl klukkan 15.
Auk leikfélagsmeðlima erhópur grunnskólanemenda á sviði, en hefð er fyrir því að Grunn- og tónskólinn á Hólmavík og Leikfélag Hólmavíkur leiði saman hesta sína annað hvert ár og setji á svið stórt verk í sameiningu. Samvinnan er býsna dýrmæt, enda er leikhúshefð afar rík á Hólmavík þar sem ungt fólk lærir snemma að stíga á svið og koma fram, sem aftur reynist þeim gott veganesti inn í framtíðina og stuðlar að öruggri endurnýjun hjá leikfélaginu.
Í ljósi þess að forsetakosningar verða hérlendis í sumar, fannst Leikfélaginu tilvalið að velja þessa skemmtilegu fjölskyldusýningu og um leið vekja athygli almennings, ekki hvað síst ungu kynslóðarinnar, á embættinu og tilvist þess. Þó ber að taka það fram að sá alvarleiki sem býr í forsetaembættinu sjálfu er víðsfjarri þessari sýningu, enda er um að ræða hressandi verk fyrir alla fjölskylduna, þar sem fram koma m.a. forseti, landnámshæna, ritarar, ráðskona, prinsessa, kýr og draugur.
Leikstjóri er Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir en verkið er unnið upp úr samnefndri bók Gerðar Kristnýar, auk þess sem Bragi Valdimar Skúlason samdi tónlistina.
Panta má miða hjá Dagbjörtu í síma 824 0756 og kostar 2.500 kr fyrir 14 ára og eldri, en 1.500 kr fyrir börn 4-13 ára. Sýning verður í Dalabúð, sunnudaginn 3. apríl klukkan 15:00.

Leikfélag Hólmavíkur

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei