Bókabingó – Lestrarátak í Dalabyggð sumarið 2022

DalabyggðFréttir

Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum.

Því ætlar sveitarfélagið Dalabyggð að leggi sitt af mörkum með lestrarátaki í samstarfi við Héraðsbókasafn Dalasýslu sumarið 2022.

Um er að ræða bókabingó í þremur aldursflokkum, þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára.
Á hverju spjaldi eru nokkrir reitir, hver reitur lýsir aðstæðum eða athöfn sem skal framkvæma á meðan lestri stendur. Þegar viðkomandi reit er lokið er merkt við hann.
Aftan á hverju spjaldi er beðið um tímabil sem bók er lesin á, titil bókar og nafn höfundar og hve margar blaðsíður bókin er.

Þann 18. ágúst nk. skila börnin inn bingóspjaldinu sínu á Héraðsbókasafn Dalasýslu, milli kl.13:30-17:00 og fá að launum glaðning fyrir þátttökuna ásamt viðurkenningarskjali fyrir að hafa lokið við bingóið.

Hægt er að nálgast útprentað spjald á bókasafninu og skrá börn til leiks dagana 14., 16., 21. og 23. júní nk. milli kl.13:30-17:00
Einnig er hægt að nálgast spjöldin til útprentunar hér fyrir neðan og biðjum við foreldra þá um að skrá barnið HÉR til að hægt sé að halda utan um fjölda barna og aldur áður en þátttökuverðlaun eru pöntuð.

Skrá þátttöku: Skráning í bókabingó sumarið 2022

Bingóspjöld til útprentunar:

Bókabingó – sumarið 2022 – spjald fyrir 5-7 ára
Bókabingó – sumarið 2022 – spjald fyrir 8-9 ára
Bókabingó – sumarið 2022 – spjald fyrir 10-12 ára

 

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei