Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna mögulegs samstarfs um rekstur Barnaverndarþjónustu en Barnaverndarþjónusta Vesturlands er samstarf sex sveitarfélaga á Vesturlandi.
Fyrir nokkru voru gerðar breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 sem m.a. fólst í því að barnaverndarnefndir voru lagðar niður en í þeirra stað tóku til starfa Umdæmisráð. Þá voru sett inn lágmarksskilyrði varðandi íbúafjölda en hver barnaverndarþjónusta verður að telja að lágmarki 6000 íbúa. Er með þessu verið að leggja ríka áherslu á að minni sveitarfélög standi saman að sameiginlegri barnaverndarþjónustu.
Dalabyggð hefur síðustu ár fengið undanþágu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu til að starfrækja barnaverndarþjónustu en nú hefur verið tekin ákvörðun um að óska formlega eftir viðræðum um samstarf með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur í sveitarfélaginu og tryggja að þjónustan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum og viðmiðum.
