Dalaveitur, lagning ljósleiðara 2018

DalabyggðFréttir

Dalaveitur ehf. óska eftir tilboðum í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Dalabyggðar. Leggja skal ljósleiðaralagnir, ganga frá þeim inn fyrir vegg á tengistöðum og ganga frá yfirborði og brunnum. Verkið skiptist í þrjá hluta og geta bjóðendur boðið í eina, tvær eða þrjár leiðir.

Helstu magntölur:

Leið 4: Plæging stofn- og heimtauga 55 km
Leið 5: Plæging stofn- og heimtauga 56 km
Leið 6: Plæging stofn- og heimtauga 35 km

Alls:                                                146 km

Verklok eru 30. september 2018.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal eða í tölvupósti. Senda skal ósk um útboðsgögn á netfangið kristjan@dalir.is. Gögnin verða tilbúin til afhendingar mánudaginn 19. mars n.k.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal, fyrir kl. 13 miðvikudaginn 28. mars n.k., en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Dalaveitur ehf. áskilja sér rétt til að taka tilboðum og/eða hafna í hvern hluta verksins fyrir sig.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei