Dalir og hólar – litir 2014

DalabyggðFréttir

Óskað eftir uppástungum frá heimamönnum um sýningarstaði fyrir myndlistasýninguna DALIR og HÓLAR 2014.
Myndlistasýningin DALIR og HÓLAR er nú í undirbúningi og verður þetta í 5. skipti sem sýningin er haldin. Sýningarnar draga nafn sitt af staðsetningu, Dalabyggð og Reykhólasveit, nánar tiltekið svæðinu við Breiðafjörð og í Dölum.
Verkefnið byggist ekki síst á góðu samstarfi við heimamenn og aðila á svæðinu. Menningarráð Vesturlands og Vestfjarða hafa stutt sýningarnar síðan 2008, ásamt stofnunum, einstaklingum og félagasamtökum á svæðinu. Sýningin Dalir og hólar 2014 er studd af Myndlistasjóði (myndlistasjodur.is).
Allar ábendingar heimamanna um hugsanlega sýningarstaði eru þegnar með þökkum. Vinsamlega hafið samband við verkefnisstjóra Sólveigu Aðalsteinsdóttur í síma 692 1194 / netfangið soladal @internet.is eða Þóru Sigurðardóttur í síma 896 1930 / netfangið thora @this.is
Fimm listamönnum – Eygló Harðardóttur, Bjarka Bragasyni, Tuma Magnússyni og Gerd Tinglum frá Noregi, ásamt ungum myndlistamanni af Vesturlandi, Loga Bjarnasyni, – hefur verið boðið að vinna ný verk fyrir sýninguna. Gengið er útfrá að kveikja verkanna verði náttúra og/eða menning svæðisins við Breiðafjörð og í Dölum og að þessu sinni munu þau jafnframt tengjast hugtakinu LITIR. Gert er ráð fyrir að verkin verði sett upp á 5-6 stöðum, en myndlistamennirnir munu jafnframt setja upp verk á 2. hæð búnaðarskólans í Ólafsdal við Gilsfjörð.
Farin verður vettvangsferð með listamönnunum 4.-6. apríl nk. og munu þeir kynna sér sýningarsvæðið, sögu þess og náttúru, hitta landeigendur og heimamenn á svæðinu og síðan velja sér sýningarstaði.
Með sýningunni sem standa mun frá 5. júlí til 10. ágúst, er ferðamönnum jafnt og heimamönnum boðið í ferðalag þar sem þeim eru kynnt verk samtíma listamanna og nálgun þeirra við viðfangsefni sín. Verkin munu verða staðsett í húsum og/eða á landsvæðum bænda og landeigenda á svæðinu. Þetta kallar á nærgætnislegt samtal milli listamanna og land-/ húseigenda.
Verkefnið leitast við að opna augu ferðamanna og heimamanna á því hvernig menning, náttúra og landslag við Breiðafjörð tvinnast saman sem ótæmandi uppspretta nýrra verka og nýsköpunar í listum og menningu. Með þeim hætti má ýta undir nýja nálgun ferðamanna við náttúruskoðun og ferðalög um svæðið. Ný myndlistaverk geta átt þátt í að opna augu fyrir nýjum sjónarhornum í annars kunnuglegu umhverfi. Sýningarnar stuðla að nýsköpun í myndlist á Íslandi og veita listamönnum tækifæri til að kynnast menningu, sögu og náttúrufari þessa tiltekna svæðis og gera það að viðfangsefni í myndlist.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei