Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Hlíðar í Hörðudal í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið nær yfir frístundarbyggð á jörðinni Hlíð í Dalabyggð og er skipulagssvæðið staðsett fyrir neðan þjóðveg nr. 581 og hefur fengið nafnið Gildurbrekkur í tillögunni.
Gert er ráð fyrir frístundarhúsum, þjónustuhúsi, hesthúsi, vélaskemmu og íbúðarhúsi ásamt bílskúr.
Skipulagssvæðið er alls um 5,4 ha að stærð.
Tillögurnar liggja frammi frá 7. júní 2018 á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.
Athugasemdum ber að skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11, 370 Búðardal, eða netfang byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 20. júlí 2018.