Deiliskipulag í Búðardal

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 13. júní 2019 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi í Búðardal skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Deiliskipulagið er um 3,5 ha að stærð og nær yfir Bakkahvamm, Lækjarhvamm og nýja götu sem fær nafnið Efstihvammur. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið.

 

Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir lóðum fyrir einbýlis-, par- og raðhús. Svæðið er er auðkennt sem íbúðarsvæði A í aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016.

 

Tillagan er sett fram á uppdrætti og umhverfisskýrsla er aðskilin greinagerð dags. 3. júní 2019. Tillaga og umhverfisskýrsla munu liggja frammi frá 3. júlí 2019 á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal.

 

Athugasemdum skal skilað til skrifstofu skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11 Búðardal, eða netfangið skipulag@dalir.is fyrir 15. ágúst 2019. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei