Deiliskipulag í Búðardal

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. mars 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í Búðardal í samræmi við 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagið nær yfir Bakka­hvamm, Lækjarhvamm og nýja götu sem fær nafnið Ásuhvammur. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir lóðum fyrir einbýlis-, par- og raðhús. Svæðið er er auðkennt sem íbúðarsvæði A í aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 og er um 3,5 ha að stærð.

Tillögurnar liggja frammi frá 12. apríl 2018 á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.

Athugasemdum ber að skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11 Búðardal, eða netfang byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 25. maí 2018.

  • Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Búðardal
  • Greinagerð með breytingu á deiliskipulagi í Búðardal
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei